JÓNA FANNEY – FRAMBOÐ TIL FORMANNS FÉLAGS LEIÐSÖGUMANNA 2023

JÓNA FANNEY –

FRAMBOÐ TIL FORMANNS leiðsagnar 2023

ÁSTÆÐA FRAMBOÐS TIL FORMANNS

FÉLAGS LEIÐSÖGUMANNA 2023

 

ÁSTÆÐA FRAMBOÐS TIL FORMANNS

FÉLAGS LEIÐSÖGUMANNA 2023

 

Jóna Fanney Friðriksdóttir

Það er von mín að sú reynsla og þekking sem ég hef aflað á fjölbreyttum starfsferli geti orðið að gagni hjá félagi leiðsögumanna.

Ég öðlaðist réttindi sem leiðsögumaður frá Leiðsöguskólanum í Kópavogi árið 1987 og henti mér þá um sumarið strax í djúpu laugina. Á þessum árum stundaði ég nám í Þýskalandi, kom iðulega heim á sumrin og varði þeim tíma í langferðum með ensku- og þýskumælandi hópa.

Í gegnum árin hef ég verið í krefjandi stjórnunarstörfum en  leiðsögumannastarfið var á þessum tíma alltaf innan seilingar í sumarleyfum.  Á þeim tíma var ég mikið í hestaleiðsögn á sumrin og gat þannig undið ofan af mér, hlaðið batteríin og mætt endurnærð til starfa á ný.

Fyrir nokkrum árum ákvað ég að söðla um og sagði ég upp fastri stöðu framkvæmdastjóra skiptinemasamtaka AFS, því mig langaði til að stíga út fyrir þægindahringinn og starfa sjálfstætt. Ég sé ekki eftir þeirri ákvörðun, það á mjög vel við mig að sinna fjölbreyttum verkefnum og hafa marga bolta á lofti. Leiðsögnin hefur á þessum tíma verið mitt akkeri

Meðfram leiðsögninni hef ég þessi ,,sjálfstæðu ár“ mín, m.a. starfað við viðskiptaráðgjöf og aðstoðað við gerð styrkumsókna, s.s. vegna styrkja hjá Rannís ofl. Einnig hef ég staðið fyrir Erasmus+ námskeiðum gegn hatursorðræðu og fordómum sem haldin voru í Marokkó og Grikklandi. Um árabil hef ég jafnframt verið stundakennnari við ferðamáladeild Háskólans á Hólum og kennt þar um árabil námskeið sem kallast ,,Stjórnsýsla ferðamála – Lög, reglur og öryggi í ferðaþjónustu á Íslandi“.

Auk viðamikillar reynslu af stjórnarstörfum og stjórnsýslu, bý ég að áratuga reynslu af starfi í félagasamtökum. Ég gerðist skiptinemi með AFS þegar ég var 16 ára gömul og hef fylgt þeim félagasamtökum allar götur síðan, sem sjálfboðaliði í stjórn, sem almennur starfsmaður og síðar framkvæmdastjóri.

Ég hef sinnt fjölda annarra trúnaðarstarfa í gegnum tíðina, sat m.a. í stjórn Landverndar sem gjaldkeri og stjórn Almannaheilla sem eru samtök þriðja geirans. Náttúruvernd, samfélagsmál og velferð eru málefni sem eru mér hugleikin.

Margt hefur áunnist í starfi Leiðsagnar sem ber að þakka óeigingjörnu starfi félagsmanna allt frá stofnun félagsins. Að mörgu er þó að hyggja og verkefnin framundan ærin.  Í þau þarf að ganga í af röggsemi á tímum mikilla umbreytinga í  ferðaþjónustu á Íslandi.

Þar tel ég að öflug stefnumótun með grasrótinni sé forgangsverkefni. Hvert viljum við leiðsögumenn stefna og hver er okkar framtíðarsýn? – Þetta er spurning sem leiðsögumenn þurfa að svara sjálfir. Nánar má kynna sér mína sýn og hugleiðingar hér á síðunum.

Ég tel mig hafa fjölbreyttan bakgrunn og reynslu til að sinna formennsku í félagi leiðsögumanna. Er það von mín að geta nýtt krafta mína í þágu félagsmanna og þeirra fjölmörgu verkefna sem á þeim og starfsstéttinni brenna.  

Með sumarkveðju,